Heilsugæslustöðin Raufarhöfn
Aðalbraut 33
Sími 464-0620
Fax 465-1250

Starfssvæði heilsugæslustöðvarinnar er Raufarhöfn og nágrenni í Norður-Þingeyjarsýslu.
Húsnæði heilsugæslunnar er að Aðalbraut 33, sem er tveggja hæða steinhús byggt 1960. Stöðin er á neðri hæð hússins, um 130 fermetrar að stærð. Á efri hæð hússins er íbúð fyrir heilsugæslustarfsmann og aðstaða fyrir tannlækni.
Starfsmenn stöðvarinnar eru læknir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir, ritarar, ræstitæknir, skrifstofustjóri og sjúkraflutningamenn.
Tannlæknir kemur frá Akureyri 8-10 sinnum á ári. Augnlæknir kemur einnig frá Akureyri einu sinni á ári. Sérfræðingur í kvensjúkdómum kemur annað hvert ár til krabbameinsskoðunar.
Lyfja rekur lyfsölu á stöðinni.
Sjúkrabifreið er í eigu og rekinn af RKÍ.
Heilsugæslustöðin á Raufarhöfn
|